Öfgafeministar

Konur í Sádi -Arabíu vilja fá að aka um þjóðvegi landsins, alveg ótrúleg frekja. Eins og það sé ekki nóg fyrir þær að fá að keyra. Það hefði farið betur á því að þær hefðu ekki fengið að læra á bíl.  Það verður að passa að hleypa þessum kvensum ekki of langt, það er aldrei að vita hvað þær kunna að heimta næst.

 


mbl.is Konur í Sádí-arabíu vilja fá að aka bílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Evil monkey

Þær fá ekki að keyra (hvorki á þjóðvegum né neins staðar annars staðar) og fá ekki að læra á bíl... það er það sem þær eru að reyna að berjast fyrir... er ég að misskilja eitthvað orðalagið þitt?

Evil monkey, 11.3.2008 kl. 23:58

2 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

.".............og er þetta gert í mótmælaskyni við lög landsins er banna konum að aka um þjóðvegi."

Ég tek bara mið af því sem stendur í fréttinni.

Þóra Guðmundsdóttir, 12.3.2008 kl. 09:05

3 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Er þetta ekki að byrja á öfugum enda, eða koma aftan að hlutunum ? Eiga konur í Sádi-Arabíu að stökkva beint úr miðöldum og inn í nútímann ?

Væri ekki ráð fyrir múslimina að byrja á einfaldari hlutum fyrst ? Eftir heimsókn valinna Þingkvenna fyrir einu ári síðan, vita Sádarnir til dæmis örugglega, að limlesting kvenna með umskurn er viðbjóður sem ætti að linna strax. Þurfum við að senda þeim nýjan hóp Þingkvenna, hugsanlega til varanlegrar dvalar ?

Loftur Altice Þorsteinsson, 12.3.2008 kl. 10:02

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Segðu, bölvuð frekja er þetta, konur eru jú ekki karlmenn.

Sporðdrekinn, 12.3.2008 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband