Verður einhver með Evru 2014?

Margir efast um að Evran lifi svo lengi.

Ég held að við ættum að stefna að því að taka um US Dollar nú eða eins og sumir hafa stungið upp á vera áfram með krónuna og reka Ríkið skuldlaust.


mbl.is Verðum ekki með evru árið 2014
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Þú vilt kannski að við bjóðum þeim hina "stabílu" íslensku krónu?

Guðbjörn Guðbjörnsson, 14.6.2010 kl. 14:36

2 identicon

Ef við tökum upp dollar, þá værum við að fá 20% minna fyrir 80% af útfluttum vörum því vörnar fara til ESB.  Það er ekki gott.

Það þarf að finna þann gjaldmiðil sem er stöðugur miðað við innflutning og útflutning frá Íslandi.  Það er evran.  Gjaldmiðlar annara ESB ríkja sem ekki eru með evru eru "bundnir" við evru þannig að það væri alveg eins hægt að taka upp evruna hér.

Það þarf allavega þann gjaldmiðil sem hámarkar tekjur af útfluttum vörum.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 14.6.2010 kl. 14:37

3 identicon

mín skoðun er sú að gengi krónunnar endurspegli hagstjórn landsins. krónan er ekki skaðvaldur heldur óábyrg stjórnun. þegar og ef einhvern tíman tekst að koma ró á efnahagslífið hér og einvher "balance" skapast þá verður gengi krónunnar stöðugt. og það er einmitt það sem mér finnst að fólk ætti að líta til frekar en að horfa stöðugt til annarra mynta. eins og ég segi þetta er fyrst og fremst léleg stjórnun frekar en að krónan sé slæm. þetta er eins og heimilsbókhaldið, ef skuldasöfnunin er meiri en inkoma þá náttúrulega fjarar undan. þetta er ekki flókið. höldum okkur við krónuna og förum að hugsa í lausnum fyrir okkur í staðin fyrir að endalaust hugsa hvað við getum gert fyrir aðra í kringum okkur.

þórarinn (IP-tala skráð) 14.6.2010 kl. 14:56

4 identicon

Eitthvað skolast nú staðreyndir til í kollinum á Stefáni Júlíussyni sem skrifar hér að framan að ef við tökum upp dollar í stað evru þá fáum við 20% minna fyrir útfluttning landsins. Hvernig er hægt að setja fram svona vitleysu. Stefáni Júlíussyni til upplýsingar þá er ekkert samhengi milli þess að evra sé 20% dýriri en dollar og svo aftur hvað við fáum greitt fyrir útfluttningsvörur okkur. Vitleysan sem þessir blessaðir bloggarar senda frá sér ríður ekki við einteyming.

HH (IP-tala skráð) 14.6.2010 kl. 14:56

5 Smámynd: Vendetta

Mér þætti það frátt, ef í fyrirsögn fréttarinnar stæði "Verðum með evru árið 2014", því að í mínum huga væri það algjörlega ómögulegt. Gylfi Magnússon gerir augsýnilega ráð fyrir því að Íslendingar verði gengnir í ESB eftir 2-3 ár, sem er harla ólíklegt, nema bæði eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt:

  1. Samfylkingin er með hreinan meirihluta á þingi og myndar ein ríkisstjórn.
  2. Ríkisstjórn Samfylkingarinnar virðir að vettugi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild.

Það er vitað mál, að Ísland, jafnvel eftir 4 ár er langt frá því að uppfylla nein af skilyrðum fyrir upptöku evru (ef svo ólíklega vill til að af aðild verði), t.d. um fjárhagshalla/skuldastöðu ríkisins. Langtímastöðugleiki krónunnar þarf líka að hafa verið talsverður (í mesta lagi 3% gengissveifla miðað við evru) áður en hægt sé að taka upp evruna.

Ég er viss um að eftir 10 ár sé Samfylkingin enn að reyna eins og rjúpan við staurinn að komast inn í ESB. Og ég vil ráðleggja fólki að taka ekkert mark á því sem Gylfi Magnússon segir. Ég álít, að blaut borðtuska yrði betri viðskiptaráherra en hann.

Vendetta, 14.6.2010 kl. 15:54

6 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Það er stór spurning hvort Evrópusambandið haldi, nú reynir virkilega á.

Evran var áhugaverð tilraun sem mér sýnst að sé að fara út um þúfur enda erfitt að sjá hvernig svona mörg sundurleit ríki sem hafa hvert sitt ólíka hagkerfi og ríkisstjórnir geti haft sömu myntina.

Þóra Guðmundsdóttir, 14.6.2010 kl. 16:07

7 identicon

HH:  Ég held að þú sért ekki með hagfræðina á hreinu hjá þér.  En það gerir ekkert til. 

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband