Og forfeður hans voru.....
Föstudagur, 8. janúar 2010
Þvílík ósvífni í manninum. Í fyrsta lagi ætlum við ekki að stela neinu og í öðru lagi ferst honum ekki að tala um forfeður.
Forfeður hans blóðmjólkuðu nýlendur sínar öldum saman svo ekki sé talað um hvernig þeir fóru ránshendi um menningarverðmæti heilu þjóðanna. Þeir hafa svo sem borið því við að þeir hafi verið að bjarga þessum verðmætum frá öðrum og verri ræningjum, þeirra þýfi hafi að mestu leiti endað á söfnum.
Þeir hafa hins vegar sýnt lítinn vilja til að skila þeim aftur enda yrði British Museum fátækara fyrir vikið. Danir mega þó eiga það að þeir skiluðu okkur aftur handritunum sem má með sanni segja að þeir hafi bjargað frá fáráðum Íslendingum þess tíma. Á þeim tíma sem þeir tóku handritin var svo illa komið fyrir Íslendingum vegna hungurs og vosbúðar að sumstaðar voru handritin notuð í leppa og jafnvel soðin í súpu.
Hinir þrjósku Íslendingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sannleikurinn í málinu.
Fimmtudagur, 7. janúar 2010
Í grein Sigtryggs Jónssonar segir að Björn hafi fengið veð í húsi Sigtryggs til að leggja í sitt fyrirtæki, það er Björns. Björn segir þá hafa verið viðskiptafélaga sem saman hafi lagt allt sitt í fyrirtæki sem fór á hausinn.
Hvort er satt? það skiptir öllu máli. Ef Björn segir satt þá er þetta bara sorgleg saga en ef saga Sigtryggs er sönn þá er Björn skúrkur.
Saknar vináttu sem glataðist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Verður hann nokkuð einn?
Fimmtudagur, 7. janúar 2010
Steingrímur fundar á Norðurlöndunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þetta hefur verið ljóst allan tímann.
Fimmtudagur, 7. janúar 2010
Joly: Átti ekki að takast á við hrun heils bankakerfis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Það má ekki anda á Arnþrúði.
Mánudagur, 16. nóvember 2009
Fyrir nokkru síðan gagnrýndi ég Útvarp Sögu og það var eins og við manninn mælt, Pétur Guðlaugsson sérlegur fylgisveinn útvarpsstjórans hringdi í mig til að skamma mig.
Arnþrúður hefur farið mikinn og fordæmt ritskoðun sem að hennar sögn er viðhöfð á öðrum fjölmiðlum. Nú hefur hún endanlega sannað að hún þolir ekki hina minnstu gagnrýni. Gagnrýni "gömlu konunnar í Keflavík" átti fyllilega rétt á sér, þessi dæmalausa hringing Arnþrúðar í verðandi fósturmóður drengs var ósmekkleg í meira lagi.
Hvað svo sem hægt er að segja um framgöngu barnaverndaryfirvalda þá var þetta útspil Arnþrúðar ótrúlega ósvífið og beinlínis heimskulegt.
Því miður er þetta ekki eina dæmið um ósmekkleg og ófagleg vinnubrögð á stöðinni. Mér er til dæmis í fersku minni þegar lesið var upp úr dagbók 15 ára stúlku í beinni útsendingu. Þau eru mörg dæmin af svipuðum toga en ég læt þetta duga.
Guðmundur rekinn af Útvarpi Sögu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Matur sem hóstar.
Mánudagur, 26. október 2009
Grunur um að svín séu sýkt af svínaflensu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ef ég væri rík(ur)
Fimmtudagur, 22. október 2009
Þá myndi ég sko vilja borga háa skatta. Ég minnist Tolla í Síld og Fisk alltaf með hlýhug. Hann var hreikinn af því að vera skattakongur Íslands, sagði að það væri bara merki um að honum gengi vel.
Bertur væri að fleir hugsuðu á þann veg. Nú virðast flestir reyna að komast hjá því að greiða skatta, alla skatta. Þeim virðist ekki nóg að vera auðugir, þeir vilja vera vellauðugir.
Þýskir auðmenn til bjargar - hærri skatta takk! | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég skora á lækna að slaka á launakröfum.
Fimmtudagur, 22. október 2009
Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá þarf að skera hressilega niður í fjárveitingum til heilbrigðismála. Eflaust er það vilji okkar flestra að hlífa þeim sem lægst hafa launin svo ekki sé nú talað um sjúklingana sjálfa. Það er beinlínis óhuggulegt að hugsa til þess hvaða áhrif harkalegur niðurskurður getur haft á þjónustu við sjúklinga.
Það er ljóst að til þess að geta lifað slíkan niðurskurð af þá verður að taka hressilega til í launamálum lækna og stjórnenda.
Læknar hafa áhyggjur af niðurskurði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Falsar Útvarp Saga niðurstöður í eigin könnunum?
Miðvikudagur, 21. október 2009
Tekið af vef Útvarps Sögu kl. 11.45.
Skoðanakönnun
- Ert þú sammála aðgerðum biskups gegn séra Gunnari Björnssyni?
- nei - 38%
- Já - 58%
- Hlutlaus - 4%
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Ég á ekki orð.
Mánudagur, 19. október 2009
Endurfjármögnun Haga lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sorglegt í alla staði.
Föstudagur, 16. október 2009
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hefur hann beðist afsökunnar?
Miðvikudagur, 14. október 2009
Vissulega var sr. Gunnar sýknaður af dómsstólum. Það lék hins vegar enginn vafi á því að hann strauk og kyssti fermingarstelpur ásamt því að hvísla í eyra þeirra.
Þetta sagðist hann hafa gert til að "sækja sér styrk eftir erfiða jarðarför".
Stúlkunum var greinilega misboðið, annars hefðu þær ekki kært.
Það er mín skoðun að ef fullorðinn maður getur ekki sinnt starfi sínu án þess að "sækja sér styrk" með þessum hætti til barna, þá á hann að finna sér eitthvað annað að gera. Sérstaklega ef hann sér ekkert athugavert við þetta hátterni.
Prestur boðar borgarafund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (57)
Gerum kröfu um sannleikann.
Laugardagur, 10. október 2009
Megin þorri stjórnmálamanna hefur komið því svo fyrir að við vitum aldrei sannleikann í málinu. Ef menn eru ekki beinlínis að skrökva þá segja þeir ekki allan sannleikann.
Það er kominn tími til að við fáum að heyra allan sannleikann og ekkert nema sannleikann.
Jóhanna beitti sér gegn láninu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Utanþingsstjórn takk.
Miðvikudagur, 30. september 2009
Það er ömurlegt að fylgjast með þessum vandræðagangi. Það er löngu kominn tími á faglega utanþingsstjórn sem tekur mið af hagsmunum þjóðarinnar en stendur ekki í þessu hagsmunapoti.
Það virðist vera æðsta markmið þessarar ríkisstjórnar að hanga saman í þeim eina tilgangi að halda Sjálfstæðisflokknum frá. Ég get verið sammála þeim með að Sjálfstæðisflokkurinn eigi ekki erindi í ríkisstjórn næstu árin.
En þar sem þessi stjórn ræður ekki við verkið þurfum við utanþingsstjórn.
Ríkisstjórnarfundur hafinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Utanþingsstjórn takk.
Miðvikudagur, 30. september 2009
Það er ömurlegt að fylgjast með þessum vandræðagangi. Það er löngu kominn tími á faglega utanþingsstjórn sem tekur mið af hagsmunum þjóðarinnar en stendur ekki í þessu hagsmunapoti.
Það virðist vera æðsta markmið þessarar ríkisstjórnar að hanga saman í þeim eina tilgangi að halda Sjálfstæðisflokknum frá. Ég get verið sammála þeim með að Sjálfstæðisflokkurinn eigi ekki erindi í ríkisstjórn næstu árin.
En þar sem þessi stjórn ræður ekki við verkið þurfum við utanþingsstjórn.
Styðja áframhaldandi samstarf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gunnar sagði sjálfur að hann hafi sótt sér styrk með því að gerast nærgöngull við stelpurnar og slíkt er einfaldlega ekki við hæfi.
Nú færi best á því að hann sjálfur sjái að nú er mál að linni og dragi sig í hlé.