Á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar
Laugardagur, 26. september 2009
Hvers vegna talar Jóhanna ekki beint við fólkið í landinu ? Dögum og vikum saman bíður fólk eftir því að heyra eitthvað frá ríkisstjórn og ráðherrum um það hvað er að gerast og þá loksins að eitthvað kemur þá er það á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar.
Loksins virðist ríkisstjórnin skilja vanda heimilanna og Árni Páll boðar löngu tímabær úrræði en það gerir hann á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar.
Hvers vegna töluðu þau ekki beint við þjóðina?
Ekki séð fyrir enda Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hrein og klár mismunun
Mánudagur, 14. september 2009
Ég veit varla hvar ég á að byrja og svo tekur verkalýðshreyfingin þátt í bullinu.
Við hvað ætla þeir að miða ? launin í dag eða í janúar ?
Skjótt skipast veður í lofti eins og við ættum að vita núna. Sá sem er vel staddur í dag þarf ekkert að vera það eftir fáeinar vikur eða mánuði. Menn geta misst vinnuna eða heilsuna og þá er voðinn vís.
Hvað með þá sem tóku hófleg lán og vildu ekki skuldsetja sig upp í topp ?. Vildu geta átt góðan afgang ýmist til að leggja fyrir nú eða bara til að nota í ferðalög og fleira.
Núna flokkast þeir til þeirra sem ráða við sitt og fá þar af leiðandi engan "afslátt" en þeir eiga heldur ekki krónu í afgang.
Nei takk, ekki þessa leið.
Það þarf bara að leiðrétta á línuna. Þeir sem þá verða samt í erfiðleikum eiga þá að fá sértæka meðferð. Sumir verða bara að fara á hausinn, hefðu jafnvel ekki þolað smá samdrátt, en öðrum yrði hjálpað.
Lykilatriði er þó að henda engum út á götu. Það ætti ekki að vera erfitt með allt þetta lausa húsnæði.
Róttækari aðgerðir til handa heimilum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Forseti Íslands eða forseti vinstri manna?
Miðvikudagur, 2. september 2009
Þessi ákvörðun hefði auðvitað ekki átt að koma á óvart.
Þó hafði ég leyft mér að vona að karluglan hefði dug í sér til að fara að vilja þess stóra hluta þjóðarinnar sem vill fá að greiða um þetta atkvæði. Það sést vel með hverjum hann er í liði. Nú nefndi hann ekki þá gjá sem er enn á milli þings og þjóðar og hefur sjaldan ef þá nokkurn tíma verið stærri. Gjánna sem honum varð svo tíðrætt um þegar hann neitaði að staðfesta fjölmiðlalögin. Þau lög, sem þó voru ekki fullkomin frekar en önnur lög, hefðu betur verið samþykkt.
Það hefur sýnt sig að það er beinlínis fáránlegt i landi sem ríkir fákeppni, jafnvel tvíkeppni (tvær blokkir skipta með sér markaði) að fjölmiðlarnir séu líka í eigu þeirra sem öllu ráða. Það er jafn fáránlegt að fjölmiðill sé í einkaeigu. Fjölmiðlarnir eru jú sagðir vera 4. valdið og því ber að stýra þeim sem slíkum.
Forsetinn staðfestir Icesave-lög | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Jákvæð niðurstaða - fyrir hvern?
Þriðjudagur, 25. ágúst 2009
Ross vonast eftir jákvæðri niðurstöðu, þá meinar hann væntanlega fyrir sig. Ég vonast líka eftir jákvæðri niðurstöðu, jákvæðri niðurstöðu fyrir mig og aðra Íslendinga. Jákvæð niðurstaða væri að mínu mati að Ross fengi ekki að kaupa svo mikið sem dropa í HS Orku.
Það er deginum ljósara að það verður aldrei samkeppni á þessum markaði. Það er varla að hún geti orðið á meginlandi Evrópu, hvað þá hér.
Ég vona að menn beri gæfu til þess að halda þessum grunnþjónustufyrirtækjum í eigu almennings.
Upplýsandi fundur með Magma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Maður fær sting í hjartað.
Sunnudagur, 23. ágúst 2009
Þetta er hræðilegt en viðbúið. Það er rándýrt að senda blessuð börnin í skóla.
Skólagjöld í Tækniskólanum (gamla Iðnskólanum) eru 38.000.- kr. fyrir önnina og þá eru bækur og allt efni eftir, á meðan Innritunargjöld (má ekki kalla skólagjöld) í Háskóla Íslands eru 45.000.- kr. fyrir veturinn.
Það var eftirtektarvert að menntamálaráðherra félagshyggju og velferðarstjórnarinnar, framlengdi leyfi framhalsskólanna til að innheimta efnisgjöld vegna "erfiðra aðstæðna í þjóðfélaginu". Skólarnir þurfa nefnilega svo mikið á þessum peningum að halda í þessu erfiða árferði. Hvað með að fella niður skólagjöld vegna erfiðra aðstæðna heimilanna ?.
Allavega ættu börn atvinnulausra og lægst launaða fólksins að fá frítt.
Hætta við skólavist vegna fjárskorts | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ráðlagður dagskammtur 1 míkrógramm?
Fimmtudagur, 13. ágúst 2009
"Sýni voru send til efnagreiningar hjá háskólanum í Bonn. Þar fundust rúmlega 2.500 míkrógrömm af eiturefninu í 150 gramma salatpoka. Það er 2.500 sinnum meira en ráðlagður dagsskammtur, að því er segir í þýskum fjölmiðlum. "
Er virkilega mælt með 1 míkrógrammi á dag af þessu eitri?
Hættulegt salat | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvað með að svipta Geir og Ingibjörgu eftirlaunum?
Miðvikudagur, 12. ágúst 2009
Hingað til hafa ráðamenn á Íslandi ekki þurft að bera neina ábyrgð á gjörðum sínum eða afglöpum. Oft er talað um pólitíska ábyrgð en hún dugar skammt. Hún er í rauninni ekki nema orðin tóm og í versta/besta falli nær viðkomandi ekki endurkjöri. Þó gerist það ákaflega sjaldan þar sem dyggir stuðningsmenn flokkanna eru vanir að standa með sínu fólki í blíðu og stríðu, þannig að hinn "seki" lendir oftar en ekki ofarlega á sínum lista(sbr. Björgvin Sigurðsson). Sem er svo kosinn af gömlum vana.
Þessi meinta pólitíska ábyrgð nær heldur ekki til þeirra sem kjósa að draga sig í hlé (Geir, Ingibjörg og Árni M.M).
Embættismenn eru í besta falli færðir til í starfi, samanber ráðuneytisstjóra nokkurn sem klárlega misnotaði aðstöðu sína.
Spurning hvort ekki væri rétt að taka upp þá siði sem tíðkast í sumum útlöndum, þ.e. að þeir sem gerast sekir um vítaverð afglöp eða gáleysi í opinberum störfum verði sviptir eftirlaunum.
Íslendingar vildu ekki lán frá Rússum" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.533.- kr. og 33 aurar á mann fyrir utan ísetningu.
Þriðjudagur, 4. ágúst 2009
Sumir eins og t.d. Norðmenn hafa ákveðið að bólusetja alla sína þegna. Að bólusetja helminginn gerir eflaust mikið gagn fyrir heildina, þó hefði ég haldið að það hefði þurft að bólusetja að minnsta kosti 2/3 hluta landsmanna ef ekki 3/4.
Hvers vegna ætli fleiri skammtar hafi ekki verið pantaðir? Fólk gæti þá bara borgað sjálft.
Bóluefni fyrir 380 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki bara netverjar.
Sunnudagur, 2. ágúst 2009
Netverjar æfir yfir lögbanni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Takk Eva og eigðu tóninn sjálfur Hrannar.
Sunnudagur, 2. ágúst 2009
Hrannar sendir Joly tóninn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Svona gera menn ekki.
Þriðjudagur, 14. júlí 2009
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Með fullri virðingu fyrir Má.
Föstudagur, 26. júní 2009
Þetta er ekki skynsamlegt að mínu mati. Var það ekki einmitt stefna Seðlabankans sem beið skipbrot? Hefði ekki verið nær að fá einhverja sem EKKI hafa unnið í Seðlabankanum?
Már skipaður seðlabankastjóri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ef aðstæður á Íslandi versna TIL MUNA.
Föstudagur, 12. júní 2009
Þannig hljóðar "varnaglinn" hans Steingríms. Hvað kallast "til muna"? Verður miðað við hvernig við höfðum það fyrir hrun eða verður miðað við þau lönd í heiminum sem hafa það verst ?
Það vakti líka athygli mína í þessari frétt að Steingrímur þykist þess fullviss að þegar hans fólk hafi allar upplýsingar um málið þá muni það samþykkja samninginn og sjá að hann er harla góður.
Jóhanna aftur á móti sagði engan ágreining í sínum flokki vegna þess að hennar fólk hafi séð að það eru ekki aðrir kostir í stöðunni.
Því spyr ég ; Hefur Samfylkingin meiri upplýsingar um málið en Vinstri grænir eða er Samfylkingarfólkið bara svona miklu klárara of fljótar að átta sig á hlutunum.
Sjálfstæðismenn til bjargar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
"Rífleg lækkun stýrivaxta" ?
Fimmtudagur, 4. júní 2009
"Glæsileg niðurstaða í Ice Save málinu" og "ríflega lækkun stýrivaxta næst"
Steingrímur ætti að gæta sín í yfirlýsingum og láta verkin tala.
Vextir lækkaðir í 12% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú ætti hver að semja fyrir sig.
Miðvikudagur, 3. júní 2009
Það eru ekki öll fyrirtæki í sömu stöðu. Sum fyrirtæki geta greitt hærri laun en önnur ekki. Hvers vegna ættu stöndugu fyrirtækin ekki að greiða launahækkun þó svo sum geti það ekki?
Hvers vegna ætti að pína önnur í þrot?
Nei nú er tíminn til að hver semji fyrir sig og hvert fyrirtæki greiði eftir eigin getu. Þó að sjálfsögðu aldrei undir lögbundnum lágmarkslaunum.
Að lokum legg ég til að stýrivextir verði lækkaðir í 3%.
Strandar á vöxtum Seðlabankans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)