ÍSLAND ÚR NATO

Ég tel réttast að við göngum úr Nato og bjóðum Rússa velkomna.

Við getum leigt þeim æfingaaðstöðu á Keflavíkurflugvelli, á góðu verði,  til næstu 50 ára eða svo.

Hvað gera Bretar þá ? 


mbl.is Dómstólaleiðin greið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skúli Guðbjarnarson

Frábær hugmynd.

Nú mætum við fyrir utan breska sendiráðið og mótmælum natóþjóðinni bretum. Þeir hafa bara sýnt okkur yfirgang frá því þeir hertóku okkur í seinni heimstyrjöldinni. Við eigum betra skilið en að vera stöðugt meðhöndluð með þessum hætti af bretum. Fyrst NATO lætur það viðgangast að ein natóþjóð beiti aðra yfirgangi margendurtekið eins og bretar hafa gert þá eigum við að endurskoða afstöðu okkar.

Skúli Guðbjarnarson, 7.11.2008 kl. 09:04

2 identicon

Eina ástæðan fyrir því að Bretar eru ekki búnir að ráðast á landið til þess að endurheimta það sem þeir telja sig eiga rétt á er vegna þess að við erum í NATO. Þannig að það síðasta sem við eigum að gera er að segja okkur úr því ágæta bandalagi þótt það sé vinsæll frasi. Það væri eins og að segja upp brunatryggingunum í miðjum bruna.

Við eigum frekar að nýta okkur NATO og EES samstarfið til þess að fá samúð "bandalagsþjóða" okkar gegn því ofbeldi sem við erum að verða fyrir. það er eina leiðin út úr þessu ástandi. Það er mikil diplómatík í gangi á bakvið tjöldin núna þannig að við þurfum bara að bíða róleg á meðan.

Það sem ég hefði viljað sjá væri meiri sýnileiki íslenskra ráðamanna í erlendum fjölmiðlum til þess að tala málstað íslands en jafnframt að detta ekki í gildru breta um fúkyrði og fljótfærni. Við vinnum þetta á skynseminni, lögum og reglum en ekki með því að segja okkur úr hinu og þessu.

kv

Umhugsun. 

umhugsun (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 09:05

3 identicon

Þetta er svolítið seint í rassinn gripið. Geir Gunga er svo seinn af þessu að hann er algerlega búinn að klúðra þessu. Ef hann hefði hótað eða farið strax úr Nató strax daginn eftir að bretar settu hryðjuverkalögin á okkur og sagst vera á leiðinni til Rússlands til að fá lán þá hefði þetta verið allt annað mál. Rússar hefðu sennilega viljað lánað okkur strax því við værum ekki lengur Nató ríki. Bandaríkjamenn hefðu alls ekki þolað þetta því landið er jú miklivægur hlekkur í varnarsamstarfi og þeir hefðu sett mikla pressu á Breta. Núna er þetta ekki eins beitt. Þetta er alveg dæmigert fyrir Geir Gungu sem sýndi mikla stillingu þegar allt var að hrynja í kringum okkur en var það ekki vegna þess að hann kann ekki að taka ákvarðanir??? Hann er ekki sannur leiðtogi það sannast endanlega núna.

þorvaldur Þórsson (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 09:23

4 Smámynd: ...

Sæl Þóra ! Ertu í hjatra þínu sannfærð um að þetta sé bezta lausnin ? Heldur þú ekki, að afi þinn H.Þ. að ég tali nú ekki um langafa þinn H.Á munu snúa sér við í gröfum sínum, við að heyra þessar yfirlýsingar þínar?

Kv. K.A.H. 

..., 8.11.2008 kl. 01:57

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég tek þessa yfirlýsingu þína sem góðlátlegt grín.

Að vísu yrði ég fyrsti maður til að fagna úrgöngu úr NATO. En við vorum ekki að losna við Bandaríska herinn til þess eins að kalla til þann Rússneska.

Engan her á Íslandi takk. Aldrei.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.11.2008 kl. 12:04

6 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Ég er auðvitað bara að grínast. En maður fer óneitanlega að velta fyrir sér hvort við eigum einhverja vini og þá hverja.

Ég ólst upp við það að ekkert væri verra en að fá Rússa. En satt best að segja er ég ekkert endilega viss um að Rússar séu svo slæmir og í samanburði við Bandaríkjamenn eru þeir beinlínis ágætir.

Núna er staðan þannig að maður þarf að hugsa allt uppá nýtt. 

Þóra Guðmundsdóttir, 8.11.2008 kl. 21:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband