Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Janúar 2012
- Október 2011
- Júlí 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Bloggvinir
- Dögg Pálsdóttir
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfríður Lilja
- Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
- Guðrún Jóhannsdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Halla Rut
- Handtöskuserían
- Hdora
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jón Magnússon
- Jón Valur Jensson
- Kjartan Eggertsson
- Klara Nótt Egilson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristín Dýrfjörð
- Kári Harðarson
- Lára Stefánsdóttir
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður G. Tómasson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Tómas Þóroddsson
- gudni.is
- Anna Pála Sverrisdóttir
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Egill Jóhannsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Guðjón Baldursson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Gunnarsson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Jónína Benediktsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Perla
- Rannveig H
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Skattborgari
- Valdimar H Jóhannesson
- Vefritid
Hvað svo????
Sunnudagur, 2. nóvember 2008
Samfylkingin afneitar Davíð, en hvað þýðir það í raun? Ætlar Samfylkingin að aðhafast eitthvað frekar, ætlar hún að una því að Davíð verði áfram Seðlabankastjóri í skjóli Sjálfstæðisflokksins?
Hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að gera? Ætlar hann að hafa Davíð áfram þrátt fyrir óánægju samstafsflokksins?
Hvað ætlar Þorgerður Katrín að gera? Ætlar hún að láta það yfir sig ganga að Davíð tjái sig eins og honum sýnist og að ekki megi ræða Evrópu?
Samfylking afneitar Davíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Það er ekkert nóg að bóka að þeir þvoi hendur sínar af Davíð.
Þessu þarf að fylgja framkvæmd.
En þeir eru ekki margir sem vilja bera ábyrgð á þessum rígfullorðna óþekktaranga.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.11.2008 kl. 16:25
Sæl Þóra. Ætli það verði ekki næst að Sjálfstæðisflokkurinn firri sig ábyrgð á fjármálaeftirlitinu sem Samfylkingin ber ábyrgð á. Þetta er bara broslegt í meira lagi finnst mér. Öll umræða um Evrópusambandsaðild er bara til að draga athyglina frá raunverulegri stöðu mála og engan vegin tímabær eins og allir vita. Ég sé ekki að það skipti lengur máli hver er seðlabankastjóri/stjórar og óþarfi að bæta á launagreiðslur þar núna þegar við stjórnum ekki lengur aðgerðum heldur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ef ég hef skilið þetta rétt. Kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 2.11.2008 kl. 16:58
Ég er ekki sammála þér Kolla með Evrópusambandið. Þvert á móti held ég að við séum nauðbeygð að horfa í þá átt og skoða málið af alvöru þó ekki væri nema vegna myntarinnar. Það er algjörlega klárt mál að við getum ekki haldið úti eigin mynt. Raunar erum við í þeirri stöðu núna að krónan er svo handónýt að við getum hvorki haft hana né skipt henni út. Við eigum umsvifalaust að víkja öllum seðlabankastjórunum og reyndar stjórninni allri síðan skipa einn faglegan stjóra. Það má vel setja neyðarlög sem svipta þá gömlu ofureftirlaununum sínum.
Jenný, ég er hrædd um að Samfylkingin geri ekkert meira í málinu.
Þóra Guðmundsdóttir, 2.11.2008 kl. 21:30
Sæl Þóra.
Því miður er Samfylkingin að skjóta sig í fótinn því flokkurinn situr nú í ríkisstjórn landsins, og ber þar jafna ábyrgð á við samstarfsflokk þann sem hann valdi sér við völd.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 3.11.2008 kl. 00:57
Þóra mikið er ég sammála þér fagleg stjórn fram að næstu kosningu hvenær sem þær verða.
Rannveig H, 3.11.2008 kl. 11:33
Sæl Þóra. Það skiptir engu hvort þú ert sammála mér eða ekki með Evrópusambandið við erum miklu fjær því nú en áður að komast inn hvort sem við viljum það eða ekki. Ef þú hefur kynnt þér skilyrði fyrir inngöngu þá veistu líklega að með nýjum skuldabagga ríkisins erum við úti á túni plús það að verðbólga og vextir eru langt yfir mörkunum. Það tekur mörg ár að ná inngöngumarkmiðum og óþarfa eyðsla á kröftum að þvæla um það núna. Mér finnst hinsvegar sjálfstæði og yfirráð yfir okkar auðlindum svo miklu meira virði og hef ekki trú á að allt sé betra í útlöndum. Þessi ESB þráhyggja er farin að minna mig á bókstafstrú þar sem menn halda eða trúa að eitthvað annað komi þeim til bjargar. Reyndar man ég ekki eftir öðru en að krónan hafi verið heldur haldlítil í útlöndum í gegnum árin. Norðmenn standa vörð um olíuna. Við eigum að standa vörð um fiskinn, vatnið, jarðhitann og landið. Með falli krónunnar mun ferðamannastraumur liggja til landsins og við eigum að einbeita okkur að því að sýna landið án þess að það verði sjúskað og fá þannig gjaldeyri til að greiða niður skuldafjallið sem við sitjum uppi með. Mér finnst mjög undarlegt ef frjálslyndir standa ekki vörð um sjávarútveginn það verð ég að segja ,,,hver þá,,, kveðja til þín Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 3.11.2008 kl. 23:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.