Færsluflokkur: Bloggar
Alveg óvart
Mánudagur, 2. janúar 2012
Það er hlálegt að svo virðist sem það eina sem við "gerðum rétt" var alveg óvart. Það er ekki eins og menn hafi tekið meðvitaða ákvöruðun um að láta hlutina fara svona, þeir reyndu eins og þeir gátu að fá meira fé inn í bankana en það var bara ekki hægt. Óþarfi að berja sér á brjóst fyrir svona lagað.
Íslenska leiðin var best | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hlegið að Íslenskum karlmönnum.
Þriðjudagur, 4. október 2011
"Íslenskir karlmenn sannfærðu sjálfa sig um að þeir væru fjármálasnillingar sem hefðu sérstaka eiginleika í farteskinu til að herja á erlenda markaði í fjármálaútrás. Svo kemst metsöluhöfundurinn Michael Lewis að orði um íslenska hrunið í viðtalsþættinum Charlie Rose á sjónvarpsstöðinni Bloomberg"
Þeir voru nú ekki vitlausari en það að þeim tókst á örskömmum tíma með klækjum og prettum að gera sjálfa sig forríka og það sem meira er þeir virðast komast upp með það.
Hlegið að Íslendingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Engin skýring
Miðvikudagur, 20. júlí 2011
Innflytjendur á reiðhjólum gefa akkúrat enga skýringu á því hvers vegna hjól hafa hækkað svona miklu meira en bílar á sama tíma. Þeir nefna sem dæmi gengisbreytingar og hækkun flutningskosnaðar, það sama á væntanlega við um bíla.
Þeir nefna reyndar líka að nú noti fólk hjólin sem farartæki í auknum mæli og reikna ég með að salan hafi aukist mikið. Mig grunar að álagningin hafi aukist samhliða. Hvers vegna er það ekki athugað?
72% dýrara að kaupa reiðhjól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Lágmarkslaun í lög
Þriðjudagur, 7. desember 2010
Mér finnst að það ætti að lögbinda lágmarkslaun of miða þau við lágmarks framfærslu. Tölurnar ættu að liggja fyrir fljótlega. Síðan getur hver samið fyrir sig.
Þeir fyrirtækjarekendur sem ráða ekki við lágmarkslaun ættu þá að snúa sér að öðru því þá kunna þeir ekki nógu vel að reka fyrirtæki, taka sjálfir of mikið til sín eða það er bara ekki rekstrargrundvöllur fyrir fyrirtækið.
Fyrirtækjarekendur eru misvel í stakk búnir til að greiða laun, sumir geta einfaldlega greitt hærri laun en aðrir, kemur þar margt til svo sem eins og færni til fyrirtækjareksturs, ytra umhverfi og fl. Það getur líka skapast tímabundið svigrúm til hærri launagreiðslna.
Örorkubætur mætti gjarnan líki hækka en þá bara til alvöru öryrja. Mér finnst bæði sjálfsagt og eðlilegt að þeir sem ekki geta framfleytt sér vegna veikinda eða fötlunar, fái aðstoð en mér finnst það jafn fáránlegt að verið sé að borga letingjum og drykkjumönnum hátt á annað hundrað þúsund í hverjum mánuði.
Lágmarkslaun verði 200 þúsund krónur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vilji borgarbúa.
Miðvikudagur, 10. nóvember 2010
Ögmundur áttar sig á því að núverandi borgaryfirvöld vilja flugvöllinn burt úr Vatnsmýrinni. Hvað með núverandi borgarbúa? og hvað með aðra landsmenn?
Í tíð R listans var kosið um framtíð flugvallarins í Vatnsmýrinni. Illu heilli hvöttu Sjálfstæðismenn "sitt fólk" að hundsa kosninguna. Forysta Sjálfstæðisflokksins á þeim tíma vildi halda flugvellinum í borginni sem og margir flokksmenn. Mig minnir að niðurstaða kosningarinnar hafi fallið flugvellinum í óhag. Ef Sjálfstæðismenn hefðu tekið þátt þá hefði niðurstaðan orðið önnur.
Talað var um að færa flugvöllinn á Hólmsheiði, en allir sem vilja vita vita að það er algjör fásinna í alla staði. Fyrir svo utan það að það er ekkert til sem heitir að færa flugvöll.
Hrafn Gunnlaugsson og Framsóknarflokkurinn töluðu um Löngusker sem er auðvitað hreint og klárt bull.
Ef flugvöllurinn í Vatnsmýrinni verður lagður af þá er nærtækast að innanlandsflugið verði flutt á Keflavíkurflugvöll.
Að mínu mati er það mál allra landsmanna hvar flugvöllurinn er staðsettur. Það er ekki einkamál Reykvíkinga.
Hitt er svo annað mál að eflaust er hægt að laga flugvöllinn aðeins til og minnka það svæði sem hann hefur nú þegar.
Mín hugmynd er sú að það ætti að laga hann til og jafnvel gefa aðeins í og hefja áætlunarflug til London og Kaupmannahafnar frá Reykjavíkurflugvelli, sleppa fríhöfn og svoleiðis veseni, bara flug og ekkert annað. Þannig mætti stytta ferðatíma til þessara staða sem eru helstu áfangastaðir Íslendinga.
Hefði ekki blásið miðstöð af | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stuðla að fjölmenningu!
Sunnudagur, 7. nóvember 2010
Ég er nokkuð ánægð með niðurstöður Þjóðfundarins svona heilt yfir. Flest er almenns eðlis og almenn samstaða ætti að geta ríkt um svo sem eins og að stjórnarskráin sé sáttmáli sem tryggi fullveldi og sjálfstæði Íslendinga og sé skrifuð fyrir fólkið í landinu. Hún eigi að standa vörð um íslenska tungu, menningu og auðlindir þjóðarinnar.
Svo eru þarna nokkur atriði eins og aðskilnaður ríkis og trúfélaga og að landið yrði gert að einu kjördæmi sem ágreiningur er um.
Að lokum er þarna atriði sem mér finnst þarfnast nánari skýringa en það er að stuðlað verði að fjölmenningu. Hvað þýðir það?
Þýðir það að fólk frá öðrum menningarheimum verði markvisst flutt til Íslands?
Stjórnarskrá fyrir fólkið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 23.9.2016 kl. 14:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Byggðastefna
Fimmtudagur, 7. október 2010
Nú er mál til komið og í raun löngu tímabært að menn setjist niður og ákveði hvaða byggðum eigi að halda við og hverjar eiga að fara í "líknandi meðferð" með það að markmiði að leggja þær niður.
Á sama tíma þarf að velja úr lífvænlega staði og styrkja þá og hvetja fólk til að fara þangað svo að það streymi ekki allir á suðvestur hornið.
Það er kristalklárt að ekki er raunhæft að halda við öllum þeim byggðum sem nú eru á landinu. Hvort sem fólki líkar það betur eða verr þá er það bara þannig. Nema við færum í að flytja inn fólk í stórum stíl.
Nú til dags vill fólk hafa alla nútíma þjónustu í seilingarfjarlægð og það er bara ekki hægt að ætlast til þess að minni pláss sem telja fáein hundruð geti haldið henni uppi.
Fólk fór að gráta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Raunávöxtun mínus 1,3%
Laugardagur, 2. október 2010
Raunávöxtun -1,3% Ég hélt að það héti tap á mannamáli. Ef þetta heldur svona áfram þá endar þetta með "neikvæðri eiginfjárstöðu"
-1,3% raunávöxtun hjá Lífeyrissjóðs verzlunarmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Verðhækkun=tekjuhækkun? Held ekki
Fimmtudagur, 26. ágúst 2010
Talað hefur verið um allt að 20 % hækkun á orkuverði. Svo virðist sem allir haldi að það þýði sjálfkrafa 20% hækkun á tekjum Orkuveitunnar. Það er hæpið að svo verði.
Við Íslendingar erum þekktir bruðlarar með vatn og rafmagn. Þess vegna þurfum við ekki að hafa mikið fyrir því að spara þar og jafnvel verulega. Að ógleymdum sparperunum öllum sem einar og sér ættu að draga úr orkuþörfinni.
Hitt er svo annað, ef almenningur verður duglegur að spara losnar um orku til að selja í annað og það væri af hinu góða.
Upplýst um gjaldskrárhækkanir á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vanhæfi.
Mánudagur, 5. júlí 2010
Er mönnum algjörlega fyrirmunað að fara eftir settum lögum og reglum? Hvað eftir annað kemur í ljós vanhæfi og getuleysi manna til að fylgja reglum við útboð, mannaráðningar og fleira. Þetta er orðið fjandi dýrt.
Seinkunin gríðarleg vonbrigði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)