Æjjj

Alveg er það óþolandi þegar svona kallar sem eru öruggir með allt sitt, fara að tala svona. Sjálfur er  Biskupinn með vel á aðra milljón í mánaðarlaun og er því sjálfur "vellauðugur" á flesta mælikvarða. 

Að segja  að hér sé umfram allt auðsældarkreppa en ekki örbirgð, er hrein móðgun við þá sem hafa þurft að draga fram lífið á rúmum hundrað þúsund krónum á mánuði. Þessi orð sýna bara að Hr. Biskupinn er ekki í nokkrum tengslum við raunveruleikann.

Veit Herra Biskupinn ekki að hér á Íslandi er fólk sem er að missa allt sitt, og vinnuna í ofanálag. Hér er fólk sem átti vart ofaní sig og á fyrir áfallið og hvað þá núna.

Vissulega eiga fáir svo bágt  að ekki sé einhver sem hafi það verr.  Mér finnst það bara ekki sæma biskupi að fara út í slíkan samanburð nú.

Má ég biðja  Biskupinn og hans félaga að bera harm sinn og áhyggjur í hljóði. 


mbl.is Aldrei verið auðugri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þér varðandi biskupstalið.

Hreiðar Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 14:22

2 Smámynd: Dystópía

Ég get ekkert að því gert en ég fæ alltaf nettan hroll þegar ég les eða heyri viðtöl við hann...

Dystópía, 25.10.2008 kl. 15:05

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Heyr heyr!  Mér varð flökurt við að lesa þessa ræðu. Hann lifir í algerri sápukúlu þessi fábjáni.

Jón Steinar Ragnarsson, 25.10.2008 kl. 15:07

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

Hann væntanlega gefur af sínu til þeirra sem minna mega sín.

Víðir Benediktsson, 25.10.2008 kl. 15:43

5 Smámynd: Anna Dóra Gunnarsdóttir

Skyldi hann gefa það úr landi eða láta það renna til íslenskra fórnarlamba?

Anna Dóra Gunnarsdóttir, 25.10.2008 kl. 15:48

6 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Biskupinn gerir eflaust eins og stendur í Biblíunni, þ.e. gefur með sér. Mig minnir að þar standi eitthvað á þá leið að ef maður á meira en maður hefur not fyrir þá gefi maður öðrum.

Þóra Guðmundsdóttir, 25.10.2008 kl. 16:00

7 Smámynd: Víðir Benediktsson

"Sá sem á tvo kyrtla gefi þeim annan sem engan á" Einhvern veginn svona hljómar þetta.

Víðir Benediktsson, 25.10.2008 kl. 16:27

8 Smámynd: Bergrún Íris Sævarsdóttir

Hvaða máli skiptir það hvort hann gefur íslenskum fórnarlömbum eða erlendum?

Bergrún Íris Sævarsdóttir, 25.10.2008 kl. 18:09

9 Smámynd: Rannveig H

Ég skrifaði um þetta færslu líka. Þetta er ótrúlegt lýðskrum og ég hef mestu skömm á þessu.

Rannveig H, 26.10.2008 kl. 00:38

10 Smámynd: ...

Bergrún !

Að sjálfsögðu skiptir máli hvort við styðjum  íslenska meðbræður okkar eða erlenda. Ég geri ekki ráð fyrir því að þú viljir horfa upp á ættingja þína veslast upp hér á götum Reykjavíkur, vegna fátæktar. Spurðu sjálfa þig, hvort myndir þú frekar gefa Íslendingi ölmusu eða einhverjum  erlendum ríkisborgara ? Ég ætlast til að fá heiðarlegt svar.

Kv. Kristján. 

..., 27.10.2008 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband