Hvað voru þetta mörg tonn ?

Alltaf skulu fréttamenn tala um hugsanlegt söluverðmæti efnanna. Það væri nær að segja hversu mikið magn þetta var og hvað þetta væri líklegt til að eyðileggja marga einstaklinga svo ekki sé talað um fjölskyldur.

Stundum er eins og fréttamenn séu að benda mönnum á hvað hægt væri að græða mikið á svona viðskiptum.


mbl.is Náðu kókaíni að verðmæti 2 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já það er rétt hjá þér Þóra.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 5.5.2008 kl. 02:17

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

Fjölmiðlar hafa átt mikin þátt í að auka sölu á fíkniefnum í Evrópu síðustu 20 ár. Sem dæmi um verð og magn kostar hasskíló á markaði 110 dollara á útimarkaði í Pakisttan og ópíumkíló 80 dollara. Hass hefur lítið geymsluþol svo þeir blanda ódýru ópíumi út í hassið sem kallast hjá fólki að hass leiði til neyslu á sterkari efnum.  Það er hættulegasta eiturlyf sem til er í heiminum.  Ef þú ferð með hass og ópíumkíló til Evrópu ertu að selja það fyrir milljón miðað við meðalverð. Ég veit ekki hvað dollarinn á Íslandi er í dag, enn fíkniefnastefna Efrópu allrar með að sortera ekki neytendur og smyglara gerir þetta mögulegt.  Er búin að halda fyrirlestra um þetta í flestum Norðurlöndum. Kókaínverð er með sömu hlutföll enda ódýrt í framleiðslu. Ég veit líka að það eina sem lækkar mikið í verði á Íslandi í dag er verð á eiturlyfjum. Eiturlyfjasmyglarar eru háðir ströngum lögum svo verðið haldist uppi. Bardagar milli glæpagengja í Norðurlöndum er stríð um reglubundna kúnna.  Ef allir fjölmiðlar hættu samtímis að tala um eiturlyfjaneyslu, myndi áhugi á þessu minnka verulega hjá unglingum.

Það ætti frekar að upplýsa unglinga og eiturlyfjakaupendur á því að í hvert skipti sem þau kaupa þessi eiturlyf, eru þau að leggja sitt af mörkum í fjármögnum terrorista sem kaupir vopn og sprengjur fyrir peninganna. Þar sem blaðamenn hafa alltaf talað um þetta sem spennandi mál eða hneyksli, fer eftir því hver á í hlut, þá eru fullorðnir ábyrgir fyrir neyslu og forvitni að prófa þetta að mestu leyti. Í USA vita þeir að stórir kaupendur vopna þaðan, fá peninga til að borga með frá börnum og unglingum á götunum í þeirra eigin landi. Og þeim er alveg sama. Götusala á Íslandi er 10 - 15 þús. grammið af kókaíni. Eða var það fyrir hálfu ári síðan. Enn er að lækka mikið núna. Blaðamönnum finnst allaf skemmtilegast að reikna þetta með þeirri aðferð. Blaðamenn tala næstum aldrei um heildaráhrif eiturlyfja á þjóðfélagið, enda vita að þess háttar fréttamennska myndi bara kosta þá starfið og fólk hefur almennt ekki áhuga fyrir þeirri hlið á málinu. Þeir eru að selja blöð og eru skólaðir í að segja frá einhverju sem veldur æsingi. Bendi á www.leap.cc til fróðleiks. Þar er hægt að sjá samtökinn sem eru aðalstuðnigsmenn lögleyðingar allra fíkniefna. Fyrrverandi fíkniefnalögregla, saksóknarar og dómarar hafa tekið höndum saman og vilja leyfa sölu á þessu í hverri búð. Þeir lokuðu blogginu mínu þar, þegar ég sagðist vera andvíkur því að sjá heróín í hillunum í Nóatúni og Hagkaup í Reykjavík. Ég er neikvæður og skil þetta ekki var skýringinn á lokuninni.

Óskar Arnórsson, 5.5.2008 kl. 06:07

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég hef oft hugsað þetta eins og þú Þóra! .. svolítið eins og verið sé að auglýsa hvað hægt er að græða á þessu.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 5.5.2008 kl. 09:13

4 Smámynd: Jón Finnbogason

Kannski er bara verið að láta fólk vita hversu mikill skattpeningur gæti farið í heilbrigðisþjónustuna ef ríkið gæti skattlagt þessa hrávöru.

Jón Finnbogason, 5.5.2008 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband