Er það svo erfitt ?
Föstudagur, 23. febrúar 2007
Hvort sem okkur líkar það betur eða verr þá förum við í manngreiningarálit alla daga með einum eða öðrum hætti.
Fyrir nokkurum árum bárust þær fréttir frá Bretlandi að þar í landi væru starfandi samtök fólks sem hefði það á stefnuskrá sinni að leyfa ætti kynlíf með börnum.
Þætti okkur í lagi að slík samtök kæmu hingað til lands í frí ? Ég efast um að hótel hér á landi sem og víða annarsstaðar myndu bjóða slík samtök velkomin. Eins verður að teljast hæpið að aðrir aðilar ferðaþjónustunnar vildu hafa það á ferilskrá sinni að hafa þjónustað slíkan hóp.
Það er heldur ekki sama hvort fólk komi eitt og sér eða í skipulögðum hópum.
Ómögulegt að flokka ferðamenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.