"Þetta er bara mansal"

Arnari Þór Stefánssyni verjanda eins sakbornings finnst dómurinn vera þungur. „Fimm ár fyrir mansal er miklu þyngra en í alvarlegri brotum til dæmis gegn börnum. Ég tel að Hæstiréttur muni sýkna en ef hann sýkni ekki að refsingin verði minnkuð.“

Þessi ungi maður gerir sér greinilega enga grein fyrir því hvað mansal er alvarlegur glæpur. Mansal er þrælasala.

Vissulega eru dómar undantekningarlaust allt of vægir í alvarlegum brotum gegn börum en það þýðir ekki að dómar í öðrum alvarlegum málum eigi líka að vera vægir.

Þar sem þetta mál er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi þá eru dómstólar ekki bundnir af dómahefðum eins og svo oft virðist vera raunin. Þess vegna er þessi dómur bara alveg ágætur. Að sjálfsögðu að því gefnu að mennirnir séu í raun sekir um þennan alvarlega glæp.


mbl.is 5 ára fangelsi fyrir mansal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þessi dómur er hvergi um of, og hinn ungi varnar maður sakbornings hefur eflaust unnið verk sit vel, svo sem vera ber.  En níðingsverk  á varnarlausri konu, jafnvel til margra ára er svo utanveltu og afstætt við alla reglu, visku og  gæsku að ef lögfræðinga settið setur ekki ofan í við þennan kjánalega varnar mann þá verður traust á það sett verulega laskað.  Það er sitt hvað að framkvæma skyldu skítverk og að missa sig í þvaðri um það.  

Hrólfur Þ Hraundal, 8.3.2010 kl. 23:25

2 Smámynd: Alexander Kristófer Gústafsson

Dauðarefsing er einu rétti dómurinn fyrir svona ógeð!

 Hang them high 

Alexander Kristófer Gústafsson, 9.3.2010 kl. 00:59

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sammála Þóra. Nær að þyngja hina dómana en létta þennan. Henging er full langt gengið  kveðja Kolla. 

Kolbrún Stefánsdóttir, 21.3.2010 kl. 18:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband