Hann er ekki sonur minn.

Ég fór í Europris úti á Granda í dag. Þar var strákur ca. 14 ára að afgreiða. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að þarna er selt tóbak. Eins og flestum er kunnugt er ólöglegt að láta krakka yngri en 18 ára afgreiða tóbak.

Ég benti verslunarstjóranum sem er að ég held pólskur, á þetta en þá svaraði hann : "Hann er ekki sonur minn" Þegar ég sagði að þetta væru lög þá yppti hann bara öxlum.

Hvers vegna komast kaupmenn upp með þetta endalaust ? Eigum við svo að trúa því að þeim sé treystandi til að fara eitthvað betur með áfengið ? 

Best að bæta því við að lögreglan sýnir svona málum takmarkaðan áhuga. Í fyrra vissi ég af því að áttundubekkingar sem voru að vinna í Nóatúni við Hringbraut, voru að selja jafnöldrum sínum sígarettur.

Ég byrjaði auðvitað á því að tala við verslunarstjórann, hann var átakanlega ungur en ætlaði samt að  reyna að gera sitt. Næst hringdi ég í lögregluna og þar var mér tekið heldur fálega það er líka svo voðalega mikið að gera hjá þeim. Þar sem ég var nú ekki alveg á því að láta vísa mér á bug með erindið var mér bent á einhverja deild sem ég man ómögulega hvað heitir, sértæk eitthvað, og þar var enginn sérstakur áhugi heldur.  Þeir ætluðu jú að "kíkja á þetta"

Þá talaði ég við Lýðheilsustöð en þar innanborðs er apparat sem heitir  tóbaksvarnir sem hefur að hluta tekið yfir það sem hét tóbaksvarnaráð  þar fannst mér ég hreinlega skynja uppgjöf "það er svo voðalega lítið hægt að gera".

Ég sem hélt að hægt væri að svipta verslanir leyfi til tóbakssölu. 

Að lokum hafði ég svo samband við aðalstöðvar Kaupáss sem reka búðirnar og þeir ætluðu að taka á málinu en bættu því við að það væri ógurlega erfitt þar sem starfsfólkið væri svo ungt. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

Það á bara að kalla til lögreglu fólk á ekki að benda mönnum á því svona mál þarf að uppræta. Með lögum skal land byggja. 

Gunnar Gunnarsson, 1.4.2008 kl. 22:20

2 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Ég mun að sjálfsögðu tilkynna þetta. Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti sem ég verð hreinlega vitni að svona löguðu. Í fyrra vissi ég til þess að í Nóatúni á Hringbraut voru 14 ára krakkar að selja jafnöldrum sínum sígarettur. Ég hringdi í lögguna, en þeim virðist vera nokk sama, svo í tóbaksvarnarráð og lýðheilsustöð og ég veit ekki hvað og hvað. Ég talaði líka við  yfirmenn hjá Kaupási.

Þóra Guðmundsdóttir, 1.4.2008 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband